Karlar sem mata konur
Karl sem matar konu með jarðarberi. Sennilega hafa þau bæði verið óhrein, því þau eru í baði. 

Karl sem matar konu með jarðarberi og er mjög ánægður með það. Það er samt ekki alveg víst að hún átti sig á þessu, allavega gleymir hún að opna munninn.

Karl sem matar konu aftan frá. Kannski þarf hann líka að hjálpa henni að fá sér bjórsopa því glösin eru svo stór.

Karl sem matar konu með morgunmat. Hún er enn uppi í rúmi þannig að kannski þurfti hún orku til að komast fram úr þennan morguninn.

Karl sem matar konu með kavíar. Hún er síður spennt fyrir matnum en hann og líklegt verður að teljast að þau deili ekki sama matarsmekk.

Karl sem matar konu með selleríi. Hún lætur sér vel líka og vonast til að fá sopa af heilsusafa á eftir.

Karl sem matar konu með kjötbita sem er samt eiginlega alltof langur til að það sé þægilegt að borða hann. Hún lætur til leiðast en vonar að bitinn sé meyr.

Karl sem matar konu með skeið og konan sér ástæðu til að gera slíkt hið sama. Nokkuð gæti verið um liðið síðan þetta átti sér stað.

Karl sem matar konu með ís á veitingastað. Henni er ekki skemmt af því að hún getur þetta alveg sjálf, en hún reynir að láta sem ekkert sé.

Karl sem matar konu með vínberjum liggjandi í grasinu. Hún er glöð en samt svolítið hissa af því að þetta er ekki þægileg stelling til að næra sig í.